Póstlisti
Skráðu netfangið þitt og fáðu tilkynningar sendar í tölvupósti
Nafn
Afskrá

Styrktaraðilar, Liðsmenn Jerico

Allra Átta vefsíðufyrirtæki styrkir þessa vefsíðu. www.8.is

ISAGA styrkir Liðsmenn Jerico. www.aga.is

Leit.is styrkir Liðsmenn Jerico. www.leit.is

Jómfrúin.is styrkir Liðsmenn Jerico. www.jomfruin.is

IOGT styrkir Liðsmenn Jerico. www.iogt.is

DalPay styrkir Liðsmenn Jerico. www.dalpay.com

Grunnskólinn Þelamörk.
(áheitahlaup)

Starfsmannfélag Kaupþings.
(við Hlemm)

Jakob Einar Jakobsson.
(hjólaði hringveginn)

Merkjalist.
(www.merkjalist.is)

Brosbolir.
(www.bros.is)

Bústaðarkirkja.
(www.kirkja.is)

Borgun hf.
(www.borgun.is)

Vatnsendaskóli.

Elísabet Sóley Stefánsdóttir var með fyrirlestur um einelti og afleiðingar þess fyrir nemendur Vatnsendaskóla fimmtudaginn 26. nóvember. Elísabet er sjálf þolandi eineltis og náði vel til nemendanna. Þau hlustuðu af áhuga, spurðu mikið og fengu svör við sínum spurningunum.

Vikuna 23.-26. nóvember verður unnið að forvörnum gegn einelti í Vatnsendaskóla. Þá daga verður kennsla í skólanum tengd einelti, samskiptum og líðan á fjölbreyttan hátt. Eftir vikuna eiga allir nemendur að vera færir um að svara spurningunni: Hvað er einelti?

Við viljum endilega fá ykkur foreldra í lið með okkur í baráttunni gegn einelti. Við hvetjum ykkur því til að ræða skólanum tengd einelti, samskiptum og líðan á fjölbreyttan hátt. Eftir vikuna eiga allir nemendur að við börnin ykkar um líðan og velta upp spurningum varðandi einelti.

Nauðsynlegt er að ræða um mikilvægi þess að virða hvern einstakling eins og hann er þannig að allir geti staðið saman gegn einelti. Við erum öll mismunandi að gerð og einmitt það gerir mannlífið svo skemmtilegt.

Eftir að hafa skoðað eineltisáætlun Vatnsendaskóla þá verð ég að segja að hún er til fyrirmyndar og ég hvet fólk til að skoða hana. Eineltisáætlunin er leiðbeinandi - upplýsandi - fræðandi og styðjandi fyrir lesandann. IHB

http://vatnsendaskoli.is/index.php?option=com_content&task=view&id=408&Itemid=153

Í eineltisáætlun Vatnsendaskóla kemur fram mikilvægi samtakamáttar heimilis og skóla í baráttunni gegn einelti. Einnig viljum við benda á nýútkominn bækling Heimilis og skóla sem heitir Einelti: ráð til foreldra en hann má finna á rafrænu formi á http://heimiliogskoli.is/ .

Með vinakveðju,
starfsfólk Vatnsendaskóla.

Nú er komið að lokum verkefnisins Vinir í Hvassó. Rauður dagur og broskarla-kökur.


Foreldrafélag skólans færði nemendum og starfsfólki skólans óvæntan glaðning. Þegar nemendur komu inn úr frímínútum var búið að dekka borð með glaðlegum, vinalegum broskarla-kökum og kókómjólk. Síðan fóru nemendur út á skólalóð og mynduðu þar eitt stórt rautt hjarta.

Vinaverkefnin byrjuðu á mánudaginn 2. nóvember með því að allir umvöfðu skólann jafnt kennarar sem nemendur og á fimmtudaginn 5. nóvember hlustuðu unglingarnir á fyrirlestur sem Ingibjörg Helga Baldursdóttir flutti. Fyrirlesturinn bar heitið „Þögnin er óvinur“ og fjallaði um einelti og afleiðingar þess. Unglingarnir hlustuðu af athygli og fengu í lokin að bera fram spurningar sem Ingibjörg svaraði.

Í vikunni 9. til 13. nóvember voru lífsleiknitímarnir notaðir til að vinna við vinaverkefnin allir voru á fullu að búa til vinabönd handa bekkjarsystkinum sínum og 10. bekkur horfði líka á sænska mynd sem fjallaði um einelti.

Í ensku-og dönskutímum voru nemendur að búa til veggmerki með hvetjandi orðum eða setningum á ensku og dönsku , veggmerkin voru síðan sett upp á veggi skólaganganna. Í smíði voru nemendur að vinna samvinnuverkefni sem var vinapússl og órói í senn. Í myndmennt var unnið með hjartaformið og í textílmennt voru þau að þæfa hjarta. Í upplýsingamennt vor u nemendur látnir skilgreina vináttu og hvað það merkti að vera vinur. Íþróttakennarinn lagði áherslu á íþróttamennsku, að þau takist í hendur fyrir kappleik,og þakki fyrir sig að leik loknum. Að þau hrósi, hvetji og sýni hvert öðru tillitssemi og virðingu og temji sér að vera jákvæð og heiðarleg.

Kennarar og nemendur á yngsta stigi hafa tengt jákvæð samskipti sérstaklega við nám og kennslu nú í nóvember. Þessa vikuna hafa allir nemendur gert vinabönd og rætt um hve mikilvægt það er að eiga góðan vin. Þeir hafa sett böndin í poka og dregið sér síðan vinabönd úr sama bekkjarpokanum eða úr poka frá öðrum vinabekk.

Þeir hópar nemenda sem eru í textílmennt búa til hjörtu. Hver nemandi teiknar sitt eigið hjarta, sem er síðan þæft úr ullarkembu ýmist rautt eða hvítt. Þegar hjörtun eru fullunnin er hugmyndin að hengja þau upp í skólanum til að gera umhverfið hlýlegra og vinalegra.

Í hönnun og smíði er unnið með ,,púsl í bekk ". Einstaklingarnir í bekknum eru misjafnir og mikilvægir í heildarmyndinni rétt eins og púslið í púsluspilinu sem bekkurinn vinnur í sameiningu. Við þurfum ekki að óttast þá sem eru ekki eins og við heldur virða þá og reyna að skilja þá. Það er mikilvægt að hver og einn fái að njóta sín á sinn hátt.

Það sem af er vinamánuðinum hafa nemendur á yngsta stigi sest niður í hring í trúarbragðafræði og hlustað á sögu um einelti. Síðan eru umræður um söguna þar sem fram koma hugtök eins og margir á móti einum, minnimáttar, hjálpsemi af fyrrabragði, stríðni, einelti, gerendur eineltis, áhorfendur að einelti, þolendur eineltis, hótanir og hversdagshetja. Lögð er áhersla á að einstaklingur sem verður vitni að stríðni eða einelti þurfi alltaf að segja einhverjum sem hann treystir frá því sem gerðist.

Í samfélagsfræði í 1. -3. bekk hafa nemendur litað hjörtu með nöfnunum sínum. Hjörtun hafa hendur og þau haldast í hendur. Jafnframt hafa nemendur gert vinakort sem sett eru í þar til gerðan póstkassa. Í síðasta tíma mánaðarins í samfélagsfræði draga svo allir eitt kort úr kassanum. Það er gott að gleðja.

Í 1. bekk var unnið með stafinn V. Allir bjuggu til dúkkulísu sem á að tákna vin. Dúkkulísurnar voru hengdar upp á ganginum þar sem þær leiðast eins og vinir í Hvassó. Fjallað var um vináttuna. Með umræðunni fundu nemendur út hvers vegna við viljum ekki láta stríða okkur og einnig hvers vegna við ætlum ekki að stríða öðrum. Mikilvægt er að reyna að særa ekki aðra hvorki líkamlega eða á sálinni og segja fyrirgefðu ef eitthvað er gert eða sagt í ógáti. Það er mikilvægt að fyrirgefa og sættast.

Nemendur í 2. bekk fengu kynningu á hugtakinu einelti. Einnig ræddu þeir hvernig góður vinur er og skráðu niðurstöður sínar niður á blað. Þeir sömdu setningar eða skrifuðu orð sem tengjast vinum, vináttu, vellíðan og skráðu á renninga sem hengdir verða á yngstastigsganginn. Í lífsleikni var unnið með lausn ágreiningsmála og það tekið sérstaklega fyrir hvernig hægt er að sigrast á hrekkjusvínunum og að leysa málin á farsælan hátt.

Í lífsleikni hafa nemendur 3. bekkjar G rætt um einelti og afleiðingar þess. Þeir hafa sett upp stutta leikþætti þar sem einelti á sér stað. Eftir leikþættina á sér stað umræða um hvað gerðist? Hvernig ætti að leysa málið? Hvað hefðu persónurnar mátt gera öðruvísi? Nemendur bjuggu einnig til svokallaða "Hróspoka" sem prýða veggi skólans. Í því fólst að nemendur voru beðnir um að hrósa bekkjarfélögum.

Síðustu tvær vikur hafa farið fram miklar umræður um einelti og afleiðingar eineltis hjá 3.bekk K. Umræðurnar komu ýmist í framhaldi af fyrirlestri eða eftir að hafa hlustað á sögu um einelti. Meðal annars fór sú umræða fram að allir geta lent í einelti sama hvernig persóna hann er. Sjálfsmynd venjulegs nemanda getur verið brotin niður með einelti og því er veigamikið að efla eigin sjálfsmynd. Í framhaldi af þessari umræðu bjuggu nemendur til bikara og verðlaunuðu sig. Þetta var gert til að minna okkur á að við erum öll einstök og frábær.

Víðistaðaskóli án eineltisþriðjudagur, 27. október 2009 / Hilmir Heiðar Lundevik 

19. – 23. október voru þemadagar hjá okkur í Víðistaðaskóla. Unnin voru fjölbreytt verkefni undir yfirskriftinni skóli án eineltis. Í 8. – 10. bekk fengum við Ingibjörgu Baldursdóttur til að halda fyrirlestur en hún kemur frá samtökunum Jerico, sem eru stuðningssamtök foreldra barna sem hafa lent í einelti og fullorðinna þolenda (sjá www.jerico.is).


Allir nemendur skólans skrifuðu ljóð og sögur, unnu fjölbreytt myndverk og miklar umræður voru um einelti, vináttu og sameiginlega ábyrgð okkar á að öllum líði vel í skólanum. Við tengdum eldri og yngri bekki saman í vinabekki og síðan voru mynduð vinapör úr bekkjunum. Vinir gáfu vinum vinabönd og vinir leiddust um skólann.

 
Á föstudeginum var samstund á sal þar sem nemendur fluttu ljóð, sögur og söng. Eftir að hafa átt góða stund í salnum héldu allir nemendur og starfsmenn saman í vinapörum niður á Víðistaðatún. Vikunni lauk með því að allir mynduðu vináttukeðju um Víðistaðatjörn og hétu því að kveða einelti á brott úr Víðistaðaskóla.


Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur eineltisáætlun skólans hér á heimasíðunni okkar. http://vidistadaskoli.is/?p=sidur&sida_id=160

Víðistaðaskóli 19. október  

Unglingadeildin í Víðistaðaskóla skráði sig til leiks í meistaradeild Liðsmanna Jerico sem þýðir að þau ætla að taka afstöðu gegn einelti og taka höndum saman og minna hvert annað á.
Þau voru yndisleg, vel undirbúin fyrir komu Ingibjargar og kyrrðin og friðurinn var eftirminnilegur. Starfsfólk skólans sem stóð fyrir vinavikunni á heiður skilið. Öll vinnan sem fram fór þessa viku tókst einstaklega vel. Skólanum til sóma.

Þess má geta að skólinn er með aðgengilega og sýnilega eineltisáætlun á forsíðu heimasíðu skólans og ætlar að taka inn geðræktarverkefnið Vini Zippýs fræðslu- og forvarnarverkefni um geðheilsu og áhrifaþætti hennar.


Vinir Zippýs er alþjóðlegt lífsleikninámsefni sem er ætlað að efla geðheilbrigði 6-7 ára barna og hefur verið notað með góðum árangri víða um heim. Verkefnið er nú þegar kennt í mörgum skólum vítt og breitt um landið. http://www.lydheilsustod.is/lydheilsustod/gedraekt 

Vinavika í Víðistaðaskóla


Í dag 23. október lauk vinaviku í Víðistaðaskóla með hátíð og skemmtun á sal skólans og uppákomu á Víðistaðatúni. Þar komu margir nemendur fram, lásu upp, fluttu ljóð og sungu fyrir samnemendur og gesti. Veitt voru verðlaun fyrir nemendaverkefni úr vinavikunni. Að loknum veitingum, múffukökum sem nemendur höfðu bakað og skreytt listilega, hittust eldri og yngri nemendur skólans á skólalóðinni. Gengið var fylktu liði niður á Viðistaðaskólatún þar sem eldri nemendur skólans leiddu þá yngri. Myndaður var hringur utan um tjörnina og heitið vináttuböndum áður en haldið var aftur á leið í skólann. 

Hér má nálgast myndasýningu frá hátíðinni í 23. október.
http://hafnarfjordur.is/hafnarfjordur/fraedslumal/?ew_news_onlyarea=&ew_news_onlyposition=11&cat_id=1210&ew_11_a_id=10157

Þelamerkurskóli í Hörgárbyggð þroski, menntun og samkennd.

www.thelamork.is/greinar/frettir/hlaupid_gegn_einelti/

Hlaupið gegn einelti
02.09.2009 

Það er okkur sönn ánægja að segja frá því að hér í Þelamerkurskóla höfum við ákveðið að taka Jakob Einar hjólagarp okkur til fyrirmyndar. Það ætlum við að gera með því að hlaupa gegn einelti í Norræna skólahlaupinu sem verður hjá okkur í lok september.

Þeð fer vel á því að nemendur og starfsfólk Þelamerkurskóla leggi sitt af mörkum gegn einelti. Í fyrsta lagi vinnum við að því að innleiða áætlun Olweusar gegn einelti, í öðru lagi leggjum við áherslu á útivist og hreyfingu í skólastarfinu og í þriðja lagi er samkennd eitt af einkennisorðum skólans.

Fyrirkomulag hlaupsins og söfnunar áheita á nemendur verður með svipuðu fyrirkomulagi og þegar við tókum þátt í Unicef-hreyfingunni á sínum tíma. En í þetta sinn eru það samtökin Liðsmenn Jeríkó sem njóta áheitanna sem nemendur safna.

Í deildinni spilar þjóðin sjálf.

Friðar-og vináttuleikur í Ingunnarskóla, Grafarholti

Einelti - dauðans alvara           
Ingibjörg Baldursdóttir grunnskólakennari og stofnandi samtakanna Liðsmenn Jerico var fimmtudaginn 07.05.09 í Ingunnarskóla og ræddi við nemendur í 4. - 7. bekk um einelti og afleiðingar þess. Hún ræddi við þau um mikilvægi þess að láta vita, ekki vera hrædd heldur sýna hugrekki og segja frá.Nemendurnir voru mjög áhugasamir, alveg frábærir og mjög ánægðir með að fá heimsóknina.
Þeir hafa ákveðið að vera í "meistaradeildinni" hjá henni sem þýðir að þau ætla að taka afstöðu gegn einelti og taka höndum saman og minna hvert annað á.

Heimsókn Ingibjargar er liður í því átaki sem Ingunnarskóli og Lionshreyfingin Úlfar í Grafarholti standa fyrir.
Myndbandið Katla gamla var svo sýnt í 4. og 5. bekk en nemendur í 6. og 7. bekk horfa á það í næstu viku.

Frumkvöðlastarf forstöðumanna ITH

Hrósið fer til Jóhönnu Margrétar Fleckenstein, forstöðumanns Hraunsins, félagsmiðstöðvarinnar í Viðistaðaskóla og Ernu Sóleyjar Stefánsdóttur, forstöðumanns Versins, félagsmiðstöðvarinnar í Hvaleyrarskóla.

Jóhanna og Erna Sóley hafa verið að vinna frumkvöðlastarf inni í þeirra félagsmiðstöðvum á sviði eineltisfræðslu og vinnu.

Þetta starf hefur líkað vel og verið mörgum ungmennum til hjálpar.

Þær stöllur bókuðu fyrirlestur á dagskrá símenntunar um einelti og afleiðingar þess og fengu tveggja tíma fyrirlestur og umræðufund fyrir starfsfólk ÍTH.

Olga Eir Þórarinsdóttir var á þeim fyrirlestri og bókaði síðan Kompetohópinn sinn sem sér um jafningjafræðsluna og hafa þau nú klárað sinn fyrirlestur.

Unga fólkið er framtíðin og þessi hópur fyllti mig bjartsýni á framtíðina í eineltismálum.

Þau munu svo sannarlega gera það sem í þeirra valdi stendur til að vinna bug á einelti. Það vill engin sjá að það fái að þrífast eins og það gerir.

Ég vil að þið vitið að ég á eftir að hugsa til þessa unga fólks sem var með mér á mánudaginn 08.06.09 oft og mörgum sinnum, einfaldlega vegna þess að þau snertu við mér - þeirra einlægni, skilningur og samhugur umvafði mig þegar ég fór frá þeim. Þau voru yndisleg og það er akkúrat svona fólk sem nær fram jákvæðum breytingum.

sunnudagur 5 september 09 2010
Nýjustu fréttir
Virðing, ábyrgð og vellíðan í borgarsamfélaginu. Loading......
Fræðslunámskeið fyrir foreldra barna með ADHD/ADD í 1. - 7. bekk...

Könnunn

Er eineltisáætlun þíns skóla aðgengi-og sýnileg?
  • Nei