Póstlisti
Skráðu netfangið þitt og fáðu tilkynningar sendar í tölvupósti
Nafn
Afskrá

Styrktaraðilar, Liðsmenn Jerico

Allra Átta vefsíðufyrirtæki styrkir þessa vefsíðu. www.8.is

ISAGA styrkir Liðsmenn Jerico. www.aga.is

Leit.is styrkir Liðsmenn Jerico. www.leit.is

Jómfrúin.is styrkir Liðsmenn Jerico. www.jomfruin.is

IOGT styrkir Liðsmenn Jerico. www.iogt.is

DalPay styrkir Liðsmenn Jerico. www.dalpay.com

Grunnskólinn Þelamörk.
(áheitahlaup)

Starfsmannfélag Kaupþings.
(við Hlemm)

Jakob Einar Jakobsson.
(hjólaði hringveginn)

Merkjalist.
(www.merkjalist.is)

Brosbolir.
(www.bros.is)

Bústaðarkirkja.
(www.kirkja.is)

Borgun hf.
(www.borgun.is)

 

Öllum skólastofnunum bæjar- og sveitarfélaga er skilt að vera með eineltis- og viðbragsáætlun sem er öllum sýni- og aðgengileg. Það þýðir að á heimasíðu skólanna á að vera hægt að finna stefnu skólans í eineltismálum tafalaust ef fólk þarf á upplýsingum að halda.

Þar á að koma fram hvert fólk geti snúið sér með fyrirspurnir og tilkynningar, hverjir komi að úrvinnslu eineltismála í skólanum, hvernig ferlið er sem fer í gang ef tilkynning berst um einelti. Þar á að standa hvað þú getir gert með hjálp skólans.

Eðlilegast og einfaldast af öllu er að eineltisáætlun og stefna skólans sé á upphafssíðunni en svo er þó ekki í dag nema á einstaka heimasíðum skóla og þeir fá hrós fyrir það. Það getur því þurft að leita í gegn um tenglana áður en áætlun eða stefna skólans finnst. Ekki gefast upp, anda djúpt. Það má þá alltaf koma með vinsamlega ábendingu til skólastjórnenda um að setja upplýsingarnar á upphafssíðu skólans til að auðvelda aðgengið.

Ef eineltis- og viðbragsáætlun skólans þíns er ekki að finna á heimasíðunni er örugglega fagnaðarefni fyrir skólastjórnendur ef þeir fá ábendingu um það þannig að þeir geti þá brugðist við og sett hana á áberandi stað strax.

Ef ekki er brugðist við strax af skólastjórnendum þá er sent formlegt erindi og tilkynnt til næstu skólanefndar bæjar, borgar- eða sveitarfélagsins um vanrækslu skólastjórnenda á fræðslu- og upplýsingavinnu í eineltismálum og þeim ber að fylgja þessu eftir.

Eftir það er það bæjar, borgar eða sveitarstjórn auk bæjar, borgar- eða sveitarstjóra sem fá formlega ritað erindi og ósk um lagfæringu strax. Þá er líka gott að vita að foreldrafélag á að vera stafandi í skólanum og það fáið þið til að virkja hina foreldrana til samvinnu með ykkur ef á þarf að halda.

Halda fund, upplýsið og fræðið alla foreldra sem mæta um það sem við er að eiga. Leitið stuðnings, vinnið sem hópur að því að ná fram úrbótum í eineltismálum og eineltisvinnu, ef á þarf að halda í ykkar skóla. Ef ykkur finnst foreldrafélagið ekki nógu virkt þá bjóðið þið fram ykkar liðstyrk. Það þurfa allir að hjálpast að.

Foreldrasamstaða er það sterkasta afl sem til er, ef hagsmunir barna eru annars vegar. Þetta afl er mikils metið innan skólanna sem eru að sinna sinni skildu en þurfa hjálp.

Á hverri skólaskrifstofu sveitarfélaga/menntasviði hverfa er starfandi sérkennslufræðingur eða annar fagaðili sem þið eigið að geta leitað til ef þið þurfið aðstoð eða ráðfæringar varðandi erfið eineltismál sem illa gengur að eiga við í skóla.

Ef stjórnendur skóla hundsa samvinnu við foreldra í eineltisvinnu eða afneitar öllu einelti sem foreldrar eru að berjast við að laga. Þá skulu þið sem í því standið eða lendið skrifa niður allt sem hefur verið reynt, allt sem hefur verið gert eða hefur gerst.

Skrá hjá ykkur, hver hefur verið tengillinn ykkar eða tenglar, hvað þetta hefur staðið lengi, allt sem málið varðar. Er ástandið þannig að búið er að vera að flytja börn í aðra skóla og fleiri á leið annað. Eru börn deyfð með lyfjum til að fá þau í skólann og til að gera líf þeirra bærilegra.

Bæjarstjóri, Borgarstjóri eða Sveitarstjóri og bæjarstjórn, borgarstjórn eða sveitarstjórn fá þá formlegt erindi frá ykkur foreldrum sem vinnið saman þess eðlis að farið sé fram á milligöngu um að utan að komandi aðili sé fengin til að koma inn í skólann og skoða hvað sé hæft í ykkar máli. Erindi þetta megi ekki hundsa, þið óskið eftir samvinnu við skólann og þið ætlið ekki að hætta fyrr en úrlausn finnist. Ekki gefast upp.

Farið aldrei ein á fundi, fáið alltaf einhvern með ykkur. Við komust eðlilega mjög auðveldlega í uppnám og þá er gott að hafa styrk og stuðning af þeim sem fylgir okkur til að halda umræðunni á réttri braut.

Við heyrum líka og upplifum það sem sagt er á mismunandi hátt þannig að á eftir fundinn getum við rætt við þann sem fylgdi okkur um það sem sagt var.

Verið vel undirbúin, takið með ykkur dagbókina góðu með öllum upplýsingum sem þið eigið varðandi það sem á að ræða á fundinum.


Ekki festast í því að ræða hvað hefur ekki verið gert eða hvernig hlutirnir hafa verið.

Einblínið á hvað sé til ráða NÚNA - Hvað á að gera núna. Til hvaða úrræða á að grípa, hver á að koma að þeim, hver sér um að koma upplýsingum til allra sem þurfa að fá upplýsingar um málið og ÁKVEÐA þann tíma sem gefinn verði til úrbóta.

Vika, tíu dagar eða tvær vikur, hittast aftur fara yfir stöðuna. Meta hvað hefur áunnist, ákveða framhaldið.

 

-"-"-"-"-"-"-

 

Foreldrar, ástvinir og uppkomnir þolendur eineltis. Yfirmenn, trúnaðarmenn og aðrir stjórnendur, allir sem málin varða. Haldið dagbók og skráið hjá ykkur allt sem upp á kemur og varðar einelti. Hvort sem þið hafið grun um einelti eða fullvissu.

Hafið dagsetningu, tímasetningu, hver á hlut að máli, hvað var gert á... hlut þolandans, hverjir voru vitni að atburðinum, hvernig var brugðist við, hver brást við, hvernig var brugðist við varðandi gerendann, hvaða áhrif atvikið hafði á þolandann og ykkur. Skráið hjá ykkur öll símtöl varðandi grun ykkar eða fullvissu. Við hvern var talað, hvað var rætt. Hvenær úrvinnsla fer af stað og hver kemur að þeirri vinnu.

Allar ferðir til sérfræðinga (lækna, sálfræðinga, geðlækna, sérfræðinga skólaskrifstofanna, trúnaðarmanna fyrirtækja eða stjórnenda sem þolandinn fer eða farið er fyrir. Verið vel undirbúin, takið dagbókina með. Dagbókin er ykkar sönnunargagn, það sterkasta sem þið hafið í höndunum.

Skráið hvað sérfræðingarnir ráðleggja, hvað lyf er verið að skrifa upp á til að deyfa þolandann svo hann fáist til að fara í skólann eða líði betur á vinnustað og á heimili. Það er siðferðileg skilda okkar að láta vita og tilkynna ef við fáum vitneskju um að einstaklingur verði fyrir ítrekuðum eineltisárásum. Þetta á við um alla.

Er nokkuð fallegra

Er nokkuð fallegra
en litla barnið þitt
á leið í skólann
í fyrsta sinn
með allt of stóra skólatösku
og pínu kvíða í augnaráðinu.
"
Og svo leit barnið upp
og brosti
úr augum þess
mátti greina virðingu
og stolt
"
Er eitthvað sem fyllir
hjarta manns
meiri gleði,
en hamingja
þess sem við elskum
mest af öllu í lífinu
barnanna okkar.

                       Inga Bald.

Liðsmenn Jerico

Til þín sem skiptir okkur Liðsmenn Jerico og ótal marga aðra svo miklu máli í baráttunni gegn einelti í þjóðfélaginu.

Samtökin eru hagsmunasamtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda, stofnuð 6. október 2008.

Liðsmenn Jerico  eru frjáls félagasamtök sem starfa óháð stjórnmálaflokkum eða trúfélögum.


Markmið samtakanna er að vekja athygli á afleiðingum eineltis ásamt því að vera athvarf fyrir þolendur og aðstandendur þeirra.

Samtökin eru vettvangur ráðgjafar, vinna að fræðslu og miðla þekkingu um málefni tengd einelti.

Liðsmenn Jerico blása til leiks í meistaradeildarkeppninni gegn einelti. Keppendur í deildinni eru þjóðin sjálf. 

Takk fyrir stuðninginn!

 

fimmtudagur 29 júlí 07 2010
Nýjustu fréttir
Virðing, ábyrgð og vellíðan í borgarsamfélaginu. Loading......
Fræðslunámskeið fyrir foreldra barna með ADHD/ADD í 1. - 7. bekk...

Könnunn

Er eineltisáætlun þíns skóla aðgengi-og sýnileg?
  • Nei